CCU - Crohn’s og Colitis Ulcerosa samtökin
  • Sáraristilbólga - Colitis Ulcerosa

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Kemur fram í ristli og / eða endaþarmi
    • Einkenni eru m.a. blóðugur niðurgangur og verkir
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Svæðisgarnabólga - Crohn's sjúkdómur

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Algengastur í neðsta hluta smáþarma
    • Greinist yfirleitt í ungum einstaklingum
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Helstu markmið CCU samtakanna

    • Stuðningur við nýgreinda einstaklinga
    • Stuðla að aukinni almennri þekkingu um sjúkdómana
    • Stuðla að útgáfu og þýðingu á fræðsluefni
    • Að starf samtakanna nái um land allt
  • CCU samtökin voru stofnuð í október árið 1995

    Samtökin eru hagsmunasamtök fólks með Svæðisgarnabólgu - Crohn's
    sjúkdóm og Sáraristilbólgu - Colitis Ulcerosa

Næsti fræðslufundur CCU

11. apríl 2024

Nýjasta fréttabréfið

Líkaðu við okkur

Viltu taka þátt í rannsókn um orsakir sáraristilbólgu.

Ný rannsókn á orsökum sáraristilsbólgu er hafin í samstarfi við Dr. George Segal og lækna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi.  Læknateymið óskar eftir að koma upplýsingum til ykkar um rannsóknina og leitar eftir þátttakendum meðal félagsmanna og einstaklinga með greinda sáraristilbólgu.  Þátttaka er skilyrðum háð eins og sjá má í tilkynningu um rannsóknina og það
má hafa beint samband við þá sem stjórna rannsókninni til að fá frekari upplýsingar.  Þetta getur hentað vel fólki hefur verið í bata og vill nota tækifærið og fara í ókeypis reglubundið eftirlit.

Hér má sjá afrit af bréfi frá Landspítalanum

Þátttaka í rannsókninni felur í sér ristilspeglun þar sem tekin verða sýni úr slímhúð ristilssins og blóðsýni. Sjá meðfylgjandi upplýsingablað.

Ristilspeglun er að kostnarlausu og einnig úthreinsunarvökvinn.

Sjúklingar með sáraritilbólgu og mega ekki vera með virkan sjúkdóm þ e a s mega ekki vera með bólgur í ristlinum núna. Með öðrum orðum verða að vera í sjúkdómshléi. Sjúklingarnir mega ekki vera á Imurel eða Remicade/Humira en í lagi með Asacol/pentasa.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í rannsókninni geta haft samband við Magdalenu, tölvupóstur magdales[at]lsh.is eða í síma 824-5458 eða Einar S Björnsson,  tölvupóstur einarsb[at]lsh.is eða í síma 825-3747.

Bestu kveðjur

Einar S Björnsson

Magdalena Sigurðardóttir.

Niðurstöður úr EPIC.com samevrópskri rannsókn

Samkvæmt upplýsingum frá Einari S. Björnssyni lækni, er komin niðurstaða í samevrópskri rannsókn þar sem skráð voru öll ný tilfelli sjúkdómanna í Austur vs. Vestur Evrópu.
Sjúkdómarnir eru algengari í Vestur-Evrópu og sýnt er fram á aukningu í sáraristilbógu á meðan nýgengi Crohns sjúkdóms stendur í stað.  Niðurstöður fyrir Ísland eru svipaðar og í öðrum norðurlöndum.
Hins vegar er athyglisvert að Crohn´s sjúklingar eru flestir komnir á ónæmisbælandi lyf innan eins árs.  Nánar verður skýrt frá nýgengi, þróun og tíðni sáraristils og Crohn´s á félagsfundum samtakanna.

Stjórn CCU samtakanna fagnar báðum þessum rannsóknum sem og öllum þeim rannsóknum sem vinna að því að lækna þá sjúkdóma sem herja á mannkynið.