Aðalfundur CCU verður haldinn þríðjudagskvöldið 25. febrúar næstkomandi. Hefðbundin aðalfundarstörf eru á dagskrá sem eru nánar auglýst í febrúar fréttabréfi samtakanna. Eftir aðalfundinn munu hjúkrunarfræðingarnir Anna Soffía Guðmundsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir sem starfa á göngudeild meltingar, Landspítala, vera með stuttan fyrirlestur um þá fræðslu og meðferð sem er í boði á meltingardeildinni. Anna Lind Traustadóttir næringarfræðingur mun einnig vera með stuttan fyrirlestur um það helsta sem þarf að hafa í huga varðandi IBD og næringu. Fyrirlestrarnir hjá þeim stöllum eru á léttu nótunum og þær gefa nógan tíma og hvetja til umræðna og fyrirspurna úr sal. Við hvetjum félagsmenn eindregið til að mæta og taka þátt í umræðunni því oftar en ekki lærum við mest hvert af öðru. Boðið verður upp á ljúfar veitingar og fundurinn hefst kl. 20:00 í sal Vistor, Garðabæ.
Næsti fræðslufundur CCU verður þriðjudagskvöldið 19. nóvember. Fyrirlesari verður Þórunn Birna Guðmundsdóttir nálarstungusérfræðingur en hún hefur sína menntum bæði frá vestrænum og austrænum læknisfræðum. Hún útskrifaðist með mastersgráðu árið 2002 frá Californíu og eftir námið rak hún stofu hér heima í nokkur ár þar sem hún bauð upp á nálarstungur, cupping, gua sha, næringar- og jurtaráðgjöf. Haustið 2011 hóf hún doktorsnám í austrænum læknisfræðum og hefur lokið því námi.
Fundurinn er sameiginlegur með Stómasamtökunum, verður í sal Vistor Hörgatúni 2, Garðabæ og hefst kl. 20:00. Eitthvað gómsætt verður á boðstólum og við hlökkum til að sjá sem flesta.
Fundurinn er sameiginlegur með Stómasamtökunum, verður í sal Vistor Hörgatúni 2, Garðabæ og hefst kl. 20:00. Eitthvað gómsætt verður á boðstólum og við hlökkum til að sjá sem flesta.
Næsti fræðslufundur CCU verður þriðjudagskvöldið 24. september. Fyrirlesari verður markþjálfinn Ingvar Jónsson. Umræðuefnið er ekki alveg komið á hreint en hann þekkir til Colitis Ulserosa og mun eflaust flétta þá reynslu inn í fyrirlesturinn. Fundurinn verður í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00.
Hlökkum til að sjá ykkur :-)
Hlökkum til að sjá ykkur :-)
Ellefu manns hafa skráð sig í hlaupið til styrktar CCU og þeim stendur öllum til boða að fá Dry fit boli. Þeir sem eru ekki þegar komnir með boli geta haft samband á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og fengið sendan bol. Kærar þakkir fyrir stuðninginn og gangi ykkur súper vel !
19. maí – Alþjóðlegi IBD dagurinn
Að lifa með langvinnan sjúkdóm, sem ekki er til lækning við, getur oft verið erfitt. Sjúkdómar hafa margvísleg áhrif á daglegt líf og þó að lyf séu af hinu góða, geta þau haft aukaverkanir sem þarf að glíma við rétt eins og sjúkdómseinkennin. Þó það ætti ekki að vera þannig, þá er staðreyndin stundum sú að þegar sjúkdómar eru „ósýnilegir“, það sést ekki utan á einstaklingnum að hann sé veikur, bætast stundum skilningsleysi og fordómar við í pakkann.
Alþjóðlegi IBD dagurinn er 19. maí en IBD er notað sem samheiti yfir tvo langvinna bólgusjúkdóma í meltingarvegi, Crohn´s sjúkdóm (svæðisgarnabólga) og Colitis Ulcerosa (sáraristilbólga). Sjúkdómarnir eru ekki algengir en talið er að um hálft prósent íslensku þjóðarinnar sé með þá og yfir 10 milljón manns í öllum heiminum. Ekki er enn vitað hverjar orsakirnar eru og þeir eru algengari á norðlægum slóðum en suðlægum. Einkenni og lyfjameðferðir eru mjög einstaklingsbundnar og sama mataræðið hentar t.d. alls ekki öllum. CCU samtökin ásamt 35 öðrum aðildarfélögum EFCCA www.efcca.org um allan heim, nýta daginn og maí mánuð til að auka sýnileika, vekja almenning til vitundar um sjúkdómana og hvetja fólk til þess að sýna skilning á erfiðum aðstæðum.
Síðasta haust gáfu CCU samtökin út salerniskort sem er hugsað til að auðvelda félagsmönnum að biðja um aðgang að salernum í neyðartilvikum. Mikilvægt er að sem flestir, bæði fyrirtæki og almenningur þekki kortið, viti fyrir hvað það stendur og veiti nauðsynlega hjálp í neyð. Félagsmenn hafa þegar fengið jákvæð viðbrögð við kortinu og verið veittur aðgangur að salernum sem áður voru ekki í boði. CCU þakkar kærlega fyrir stuðninginn og vonar að enginn lendi aftur í þeim erfiðu aðstæðum að vera neitað um aðgang að salerni í neyð.

CCU samtökin eru aðildarfélag að EFCCA sem eru Evrópsk regnhlífarsamtök fjölmargra Crohn´s og Colitis Ulcerosa samtaka víðsvegar um heiminn. www.efcca.org. Öll þessi félög og fleiri til taka þátt í að vekja athygli á sjúkdómunum og 19. maí er alþjóðlegur IBD dagur. Okkar þátttaka felst í vitundarvakningarherferð undir slagorðinu "Þú sérð það ekki utan á mér" Frá 1. til 19 . maí birtast póstar á fésbókinni og instagram með setningum sem koma frá félagsmönnum CCU. Þær lýsa á einn eða annan hátt þeim veruleika eða aðstæðum sem sumir búa við eða hafa lent í. Allir vita að sjúkdómarnir eru mjög einstaklingsbundnir og þess vegna eru setningarnar alls ekki lýsandi fyrir alla, en þær lýsa engu að síður aðstæðum sem margir glíma við.
Næsti fræðslufundur CCU verður fimmtudagskvöldið 4. apríl og er sameiginlegur með Stómasamtökunum. Að þessu sinni verður fyrirlesari Bjartur Guðmundsson leikari og árangursþjálfi. Hann býður upp á skemmtilega og óvenjulega árangursþjálfun fyrir alla sem vilja öðlast hámarks aðgengi að getu sinni og hæfileikum á hvaða sviði sem er. Fundurinn verður í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíðinni, 1.hæð til hægri og hefst kl. 20:00.
Aðalfundur CCU verður haldinn þriðjudagskvöldið 12. febrúar. Hann verður í sal Vistor, Hörgatúni 2, Garðabæ og hefst kl. 20:00. Fundurinn er nánar auglýstur í janúar fréttabréfi samtakanna.
Næsti fræðslufundur verður þriðjudagskvöldið 13. nóvember og fyrirlesari verður sálfræðingurinn Jóhann Thoroddsen. Hann lauk B.S. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 1977, Cand. Psych. frá Gautaborgarháskóla í Svíþjóð 1982 og tveggja ára námi í hugrænni atferlismeðferð 2008. Hann ætlar að tala um hvað getur gerst þegar við fáum þær fréttir að vera komin með langvinnan sjúkdóm. Hver verða viðbrögðin og hvernig er hægt að takast á við þau. Getum við náð sátt og lært að lifa með sjúkdómnum og hvaða áhrif getur þetta haft á fjölskyldu og vini. Fundurinn verður í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst klukkan 20:00.