CCU - Crohn’s og Colitis Ulcerosa samtökin
  • Sáraristilbólga - Colitis Ulcerosa

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Kemur fram í ristli og / eða endaþarmi
    • Einkenni eru m.a. blóðugur niðurgangur og verkir
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Svæðisgarnabólga - Crohn's sjúkdómur

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Algengastur í neðsta hluta smáþarma
    • Greinist yfirleitt í ungum einstaklingum
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Helstu markmið CCU samtakanna

    • Stuðningur við nýgreinda einstaklinga
    • Stuðla að aukinni almennri þekkingu um sjúkdómana
    • Stuðla að útgáfu og þýðingu á fræðsluefni
    • Að starf samtakanna nái um land allt
  • CCU samtökin voru stofnuð í október árið 1995

    Samtökin eru hagsmunasamtök fólks með Svæðisgarnabólgu - Crohn's
    sjúkdóm og Sáraristilbólgu - Colitis Ulcerosa

Næsti fundur CCU

5. mars 2026

Nýjasta fréttabréfið

Líkaðu við okkur

Næsti fræðslufundur CCU verður sameiginlegur með Stómasamtökunum, fimmtudagskvöldið 5. mars. Fyrirlesari verður Björn Berg Gunnarsson sem er ráðgjafi í lífeyrismálum. Hann mun fjalla um uppbyggingu lífeyriskerfisins og fara yfir þá valkosti sem standa til boða við úttekt lífeyris og samspil lífeyris við almannatryggingakerfið. Fundurinn verður haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, fyrsta hæð til hægri og hefst kl. 20:00. Kaffi og veitingar verða á boðstólum og húsið opnar 19:30 💜