Á næsta fræðslufundi CCU munu Ingunn Lára, Þórdís Jóna og Hildur Dís frá Veldu þig – Lífsþjálfun verða fyrirlesarar fundarins. Þórdís er með Sáraristilbólgu og Hildur Dís með Crohns svo þær þekkja vel inn á okkar málefni. Þær hafa allar notað lífsþjálfun í sínu daglega lífi með góðum árangri og vilja miðla af sinni reynslu og vitneskju og einkunnarorðin þeirra eru: Gleði — Kraftur — Seigla. Fundurinn verður fimmtudagskvöldið 29. október í Sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 19:30. Hlökkum til að sjá ykkur !