Botn:
450 gr. kasjúhnetur
125 gr. valhnetur
375 gr. kókosmjöl
75 gr. kakónibbur
250 gr. döðlur
100 gr. raw CC k akó (1 bolli)
120 ml. hlynsýróp
2 msk. vanilludropar
60 ml kókosolía
60 ml. vatn
1/3 stk. sjávarsalt
Bræðið kókosolíu varlega í vatnsbaðið þar til hún flýtur. Setjið hnetur í matvinnsluvél og hakkið í fínt duft. Bætið öllu útí nema vatni,olíu og sýrópi. Blandið vel þar til þetta er orðið að góðum massa.
Bætið þá vatni, olíu og sírópi úti og setjið í form, silikon eða smelluform (notið bökunarpappír í botn á smelluformi). Geymið í kæli.
Krem:
120 ml. hlynsíróp
60 gr. brædd kókosolía
50 gr. raw CC kakó (1/2 bolli)
Ögn af sjávarsalti
1/4 bolli kakónibbur til skrauts.
Setjið sýróp og brædda kókosolíu í matvinnsluvél. Blandið vel saman og bætið útí kakó og salti. Hrærið í slétt krem. Hellið kreminu á kökuna og stráið nokkrum kakónibbum yfir.
Geymið í kæli í ca. 2 tíma.
Í staðin fyrir rjóma er upplagt að hræra saman eina dós af sýrðum rjóma og 1 til 2 msk. af akasíu hunangi.
Úr blaði Heilsuhússins
Kristín Steinarsdóttir