Þessa dagana er í gangi vitundarvakning hjá CCU samtökunum. Frá 1. til 19. maí birtast færslur með myndum og texta og Webmo sér um uppsetninguna eins og fyrri ár. Núna er viðfangsefnið IBD og geðheilsa, sem er mjög mikilvægt að huga að þegar einstaklingar eru að glíma við langvarandi veikindi. CCU samtökin eru aðildarfélag að EFCCA og taka mörg félög um alla Evrópu þátt í að vekja athygli og fræða almenning um sjúkdómana og áhrif þeirra á daglegt líf.
19. maí er alþjóðlegur IBD dagur og í tilefni hans munum við bjóða upp á fyrirlestur á zoom.
Sigurgeir Ólafsson hefur rannsakað erfðir bólgu og sjálfsofnæmissjúkdóma síðan 2014, fyrst við Íslenska Erfðagreiningu en síðar sem doktorsnemi við Cambridge háskóla í Bretlandi. Hann starfar nú við rannsóknarhóp sem hefur undanfarinn áratug verið leiðandi á heimsvísu við erfðarannsóknir á IBD. Sigurgeir ætlar að segja okkur almennt (á sem skiljanlegustu máli) hvernig svona erfðafræðirannsóknir virka, hvað þær kenna okkur og hvernig þær nýtast beint við þróun nýrra lyfja og meðferða gegn sjúkdómnum. Fyrirlesturinn verður léttur og skemmtilegur og gerir ekki ráð fyrir neinni kunnáttu í líffræði eða tölfræði. Félagmenn frá sendan link og aðgang á fundinn í email þann 19. maí, sama dag og fyrirlesturinn fer fram.
Hvetjum alla til að hlusta á fróðlegan fyrirlestur í tilefni dagsins :-)

Aðalfundur CCU verður haldinn fimmtudagskvöldið 18. febrúar og að honum loknum mun hjúkrunarfræðingurinn Margrét Marín Arnardóttir kynna meistararitgerð sína sem fjallaði um lifsgæði einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi. Hún skoðar mest andlega líðan einstaklinga með Crohn’s sjúkdóm og Ulcerative Colitis og veltir fyrir sér hvort samræður (e. Partnership as practice) við hjúkunarfræðinga geti bætt líðan að einhverju marki. Þar sem áhugi hennar liggur að andlegri líðan gerði hún verkferla fyrir einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi sem koma í speglun. Í verkferlinum er unnið með ESAS matstækið sem mælir m.a. andlega líðan. Með þessu matstæki vonast hún til að ná til þeirra einstaklinga sem eru í þörf fyrir sálræna aðstoð.
Margrét lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2002, MS námi í klínískri hjúkrun við HÍ áríð 2016 og hefur unnið á speglunardeild LSH síðan árið 2008. Margrét er formaður Innsýnar, fagdeildar hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna- og meltingarfærarannsóknir. Hún er einnig tengiliður Íslands við ESGENA (The European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses and Associates) og fer á ráðstefnur á þeirra vegum þar sem hún kennir og leiðbeinir hjúkrunarfræðingum notkun áhalda við ýmsar gerðir speglana.
Fundurinn verður sem fyrr í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00 og við gerum ráð fyrir að Margrét byrji um níu leytið. Vegna fjöldatakmarkana á staðnum biðjum við þá sem vilja mæta í Vistor að senda email áThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og skrá þátttöku. Fundirnir verða einnig sendir út "live" í lokaða umræðuhópnum á fésbókinni.
Margrét lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2002, MS námi í klínískri hjúkrun við HÍ áríð 2016 og hefur unnið á speglunardeild LSH síðan árið 2008. Margrét er formaður Innsýnar, fagdeildar hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna- og meltingarfærarannsóknir. Hún er einnig tengiliður Íslands við ESGENA (The European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses and Associates) og fer á ráðstefnur á þeirra vegum þar sem hún kennir og leiðbeinir hjúkrunarfræðingum notkun áhalda við ýmsar gerðir speglana.
Fundurinn verður sem fyrr í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00 og við gerum ráð fyrir að Margrét byrji um níu leytið. Vegna fjöldatakmarkana á staðnum biðjum við þá sem vilja mæta í Vistor að senda email á
CCU samtökin voru stofnuð 26.október 1995 og eiga 25 ára afmæli í dag. Vegna Covid varð stjórnin að fresta fyrirhuguðu afmælismálþingi um óákveðinn tíma en langaði samt að gera eitthvað í tilefni dagsins. Niðurstaðan varð sú að gefa meltingardeild Landspítalans æðaskannaljós sem við höfðum frétt að væri ofarlega á óskalista Önnu Soffíu og meltingarteymisins. Stundum getur verið erfitt að finna æðar og tækið sýnir einfaldlega hvar þær eru og hvar er best að stinga. Elísabet Sverrisdóttir og Edda Svavarsdóttir afhentu tækið fyrir hönd CCU samtakanna og Anna Soffía Guðmundsdóttir, Aðalbjörg Ólafsdóttir og Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfræðingar og Guðmundur Ragnarsson meltingarsérfræðingur tóku á móti fyrir hönd meltingardeildar 10E á Landspítalanum.
Enn og aftur neyðumst við til að fresta fræðslufundinum vegna Covid. Við bíðum og setjum fundinn aftur á dagskrá eins fljótt og hægt er.
Fræðslufundinum sem frestað var í vor verður haldinn fimmtudagskvöldið 8. október 2020. Þeir sem vilja mæta á staðinn eru velkomnir og salurinn er það stór að við getum virt bæði 1 og 2 m regluna eftir þörfum. Fundurinn verður líka "Live" í lokaða umræðuhópnum á fésbókinni.
Fyrirlesari á fundinum verður hjúkrunarfræðingurinn Margrét Marín Arnardóttir. Hún lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2002, MS námi í klínískri hjúkrun við HÍ áríð 2016 og hefur unnið á speglunardeild LSH síðan árið 2008. Margrét er formaður Innsýnar, fagdeildar hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna- og meltingarfærarannsóknir. Hún er einnig tengiliður Íslands við ESGENA (The European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses and Associates) og fer á ráðstefnur á þeirra vegum þar sem hún kennir og leiðbeinir hjúkrunarfræðingum notkun áhalda við ýmsar gerðir speglana.
Margrét segir: “ Í meistararitgerð minni “Líðan og lífsgæði einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi” skoða ég mest andlega líðan einstaklinga með Crohn’s sjúkdóm og Ulcerative Colitis og velti fyrir mér hvort samræður (e. Partnership as practice) við hjúkunarfræðinga geti bætt líðan að einhverju marki.
Þar sem áhugi minn liggur að andlegri líðan, gerði ég verkferil fyrir einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi sem koma í speglun. Í verkferlinum er lagt fyrir einstaklinganna ESAS matstækið sem mælir m.a. andlega líðan. Með þessu matstæki vonast ég til að ná til þeirra einstaklinga sem eru í þörf fyrir sálræna aðstoð.”
Fundurinn verður í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00.

Hjálmar S. Ásbjörnsson er félagi í CCU samtökunum og er sem stendur að læra kennsluþjálfun í núvitund í samstarfi með Núvitundarsetrinu og Bangor háskóla í Wales. Sem hluta af náminu býður hann 8 til 15 félögum CCU að taka þátt í einu námskeiði þeim að kostnaðarlausu. Þátttakendur frá hefti em inniheldur upplýsingar um námskeiðið, fræðslu og verkefni.
Núvitund og streituminnkun (MBSR) er 8 vikna námskeið þar sem þátttakendur læra og þjálfa sig í aðferðum núvitundar og hvernig hægt er að innleiða nálgunina í daglegt líf. Þeim er jafnframt boðið að skoða hvernig aðferðirnar geta dregið úr vanlíðan og leitt til aukinnar vellíðunar. Áhersla er lögð á reynslunám þar sem þátttakendur fá tækifæri til að „finna á egin skinni“ það sem námskeiðið er að kenna og eru notaðar bæði formlegar og óformlegar núvitundaræfingar til þess.
Námskeiðið nýtist þeim sem hafa áhuga á að gefa sér tíma til að skoða eigin upplifanir og viðbrögð og hvernig hægt er að bregðast við erfiðri líðan og streitu á hjálplegan hátt.
Kynningarfundur verður haldinn í Batamiðstöðinni fyrir aftan Kleppspítala fimmtudaginn 24. september klukkan 19:30 og námskeiðið hefst fimmtudaginn 1.október á sama stað og er hver tími frá 19-21.
Hægt er að skrá sig með því að senda nafn og símanúmer áThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og skilyrði fyrir þátttöku er að vera félagi í CCU samtökunum.
Núvitund og streituminnkun (MBSR) er 8 vikna námskeið þar sem þátttakendur læra og þjálfa sig í aðferðum núvitundar og hvernig hægt er að innleiða nálgunina í daglegt líf. Þeim er jafnframt boðið að skoða hvernig aðferðirnar geta dregið úr vanlíðan og leitt til aukinnar vellíðunar. Áhersla er lögð á reynslunám þar sem þátttakendur fá tækifæri til að „finna á egin skinni“ það sem námskeiðið er að kenna og eru notaðar bæði formlegar og óformlegar núvitundaræfingar til þess.
Námskeiðið nýtist þeim sem hafa áhuga á að gefa sér tíma til að skoða eigin upplifanir og viðbrögð og hvernig hægt er að bregðast við erfiðri líðan og streitu á hjálplegan hátt.
Kynningarfundur verður haldinn í Batamiðstöðinni fyrir aftan Kleppspítala fimmtudaginn 24. september klukkan 19:30 og námskeiðið hefst fimmtudaginn 1.október á sama stað og er hver tími frá 19-21.
Hægt er að skrá sig með því að senda nafn og símanúmer á